Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Sex í sama svefnpokanum

Bók­in lýs­ir fyrstu ferð manna yf­ir Vatna­jök­ul. Bret­inn William Lord Watts leiddi för. Leið­ang­urs­menn þurftu að glíma við ófærð og kulda.

Sex í sama svefnpokanum
Vatnajökull Frá því William Lord Watts fór yfir Vatnajökul hafa margir lagt leið sína á sömu slóðir, Mynd: Shutterstock

Norður yfir Vatnajökul er ein af allra bestu ferðasögum sem skráðar hafa verið um ferðir á Íslandi. Bókin fjallar um fyrsta leiðangurinn sem farinn var yfir Vatnajökul. Það var árið 1875 þegar William Lord Watts lagði í þessa hættulegu ferð, þvert yfir jökulinn og hálendið ásamt íslenskum  aðstoðarmönnum. Bókin kom fyrst út á ensku, ári eftir ferðina, og hét þá Across the Vatna Jökull. Árið 1962 kom hún síðan út í frábærri þýðingu Jóns Eyþórssonar. Í litríkum textanum er lýst bæði landi og fólki með þeim hætti að lesandinn er kominn langt aftur í aldir að berjast um íslenska náttúru á vegleysum og um óbyggðir, þvert yfir hálendi Íslands, fram og til baka. Bókin er fyrir löngu illfáanleg og því tímabært að gefa hana aftur út.  Þessi seinni útgáfa er undir merki útgáfunnar Eldjökuls. Það er fjallagarpurinn Gerður Steinþórsdóttir sem skrifar nýjan formála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár