Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að verðtryggð íslensk króna sé sterkasti og stöðugasti gjaldmiðill í heimi. Þetta kom fram í viðtali við hann í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun.
Þegar rætt var um háa vexti á Íslandi í þættinum sagði Sigmundur að sumir kenndu krónunni um þetta. „Þá bendi ég á, eins og fleiri hafa nú bent á, við erum í rauninni með sterkasta og stöðugasta gjaldmiðil heims sem er verðtryggða krónan,“ sagði hann.
Bar hann krónuna saman við kanadíska dollarann og sagði að ef Kanadadollar yrði tekinn upp á Íslandi og valið stæði á milli þess að lána í verðtryggðri íslenskri krónu eða dollaranum, þá væri kanadíski dollarinn óöruggari. „Í rauninni ætti hann þá að bera hærri vexti heldur en verðtryggða krónan. Þannig að það er eitthvað að í kerfinu hérna annað en bara krónan þegar að meira að segja stöðugasta mynt heims, verðtryggða krónan, er með svona háa vexti ofan á verðtrygginguna,“ sagði Sigmundur.
Gengi íslensku krónunnar hefur verið stöðug allra síðustu ár innan gjaldeyrishafta, en ef sveiflur gjaldmiðilsins undanfarna áratugi eru bornar saman við aðra gjaldmiðla blasir við önnur mynd. Til að mynda kemur fram í skýrslunni Gengissveiflur krónunnar og virkni innlends gjaldeyrismarkaðar frá Seðlabankanum að á tímabilinu 1995 til 2010 hafi staðalfrávik mánaðarlegra gengisbreytinga krónunnar verið nokkru hærra en gildir um gjaldmiðla annarra iðnríkja. Einungis gjaldmiðlar Brasilíu, Suður-Afríku og Tyrklandi voru með hærra staðalfrávik en Ísland.
Sem kunnugt er talaði Sigmundur Davíð fyrir því í aðdraganda þingkosninganna 2013 að verðtryggingin yrði afnumin. „Verkefnin eru tvíþætt, annars vegar afnám verðtryggingar til framtíðar, hins vegar leiðréttingin,“ skrifaði hann í bloggpistli þann 15. mars það ár.
Athugasemdir