Reynsla

Lífið í ástarsambandi með fleirum en einum

Óhefðbundið sambandsform er að ryðja sér til rúms. Benjamín Julian segir frá lífsskoðunum og reynslu sinni og annarra sem eru í fjölástarsamböndum. Þegar fólk er í ástarsambandi með fleirum en einum þarf það ekki að þýða að ástin sé minni, ekki frekar en að foreldrar elski börn sín minna þegar bætist í hópinn.

Í haust var ReykjavíkurAkademíunni gert að flytja úr JL-húsinu. Við tók hústaka nokkurra velunnara lista og almannarýmis sem héldu húsinu í tíu daga. Þó hústakan hafi varað stutt varð hústökufólkið mjög náið að henni lokinni; allir eignuðust nýja vini, tvö úr hópnum urðu par – og ég og kærastan mín eignuðumst nýjan kærasta.

Þetta er sagan af ferð okkar úr hugarheimi einkvænis yfir í sambandsstjórnleysi – hvernig við lærðum að ást deilist ekki, heldur margfaldast, og hvað gerist þegar maður ákveður að einu reglurnar í lífinu skuli vera þær sem maður setur sjálfur. Hún hefst á fjórfaldri endajaxlatöku og tilfinningalegum brotsjó og lýkur í yndislegu sambandi þar sem allt er í boði og allt er rætt til enda.

Skráðu þig inn til að lesa

Þú færð 6 greinar fríar í mánuði. Þú hefur síðan val um að styrkja óháða blaðamennsku með áskrift á hagstæðu verði, frá aðeins 950 krónum á mánuði. Leiðbeiningar má nálgast á stundin.is/leidbeiningar.