Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Kærir ákvörðun Sigríðar: „Það er valdníðsla þegar stjórnvald misnotar opinbert vald“

Jó­hann­es Rún­ar Jó­hanns­son hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, sem met­inn var með­al 15 hæf­ustu af hæfis­nefnd vegna skip­un­ar í Lands­rétt, hef­ur kært ákvörð­un Sig­ríð­ar And­er­sen dóms­mála­ráð­herra um að hand­velja fjóra sem lentu neð­ar í hæf­is­mati.

Kærir ákvörðun Sigríðar: „Það er valdníðsla þegar stjórnvald misnotar opinbert vald“

„Það er valdníðsla þegar stjórnvald misnotar opinbert vald með þeim hætti að ólögmæt og ómálefnanleg sjónarmið, svo sem vinátta, flokkshagsmunir eða óvild, ráða ákvörðun þess,“ segir Jóhannes Rúnar Jóhannsson hæstaréttarlögmaður, sem Sigríður Andersen dómsmálaráðherra ákvað að skipa ekki í Landsrétt þrátt fyrir að hann hefði verið metinn meðal fimmtán hæfustu umsækjendanna. 

Jóhannes Rúnar hefur ákveðið að kæra íslenska ríkið vegna málsins. „Ég, sem umsækjandi um embætti dómara við Landsrétt, hæstaréttarlögmaður og borgari í þessu landi, get ekki sætt mig við að réttur sé brotinn á einstaklingum, eins og hér háttar til, án þess að bregðast við. Háttsemi af þessu tagi á ekki að líðast,“ segir Jóhannes Rúnar.

Meðal þeirra sem Sigríður skipaði, sem metnir voru minna hæfir en Jóhannes Rúnar, var eiginkona Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og samflokksmanns Sigríðar. Þá valdi hún eiginmann samstarfskonu sinnar og eiganda lögmannsstofunnar Lex, Jón Finnbjörnsson, fram yfir 29 aðra sem metnir voru hæfari af sérstakri hæfisnefnd. Þingmenn Bjartrar framtíðar og Viðreisnar hafa vísað til þess að jafna hafi þurft kynjahlutfall frekar en val hæfisnefndar endurspeglaði, en Sigríður valdi engu að síður karlmenn sem metnir voru minna hæfir en konur á listanum.

„Meirihluti Alþingis brást því hlutverki sínu.“

Jóhannes Rúnar Jóhannsson átelur Alþingi fyrir að bregðast ekki við ákvörðun Sigríðar Á. Andersen, en þingmenn Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokksins, samþykktu tillögu Sigríðar eftir umræður á Alþingi. „Það er sannfæring mín að málsmeðferð dómsmálaráðherra og Alþingis við val á umsækjendum til skipunar í embætti dómara við Landsrétt hafi brotið í bága við lög. Ég trúi því ekki að þriðja grein ríkisvaldsins, dómsvaldið, muni láta það viðgangast átölulaust. Ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja frá niðurstöðum faglegrar dómnefndar um hæfni umsækjanda um embætti dómara við Landsrétt var hvorki tekin með þeim hætti, né á grundvelli þeirra forsendna, sem lög áskilja. Alþingi hefði átt að bregðast við og hafna breyttri tillögu ráðherrans. Meirihluti Alþingis brást því hlutverki sínu.“

Nú þegar hefur Ástráður Haraldsson ákveðið að kæra skipunina, en hann var einnig metinn meðal fimmtán hæfustu. Ástráður og stjórnmálaskoðanir hans höfðu meðal annars verið til umfjöllunar í háðsgrein í vefriti sem meðal annars var ritstýrt af Sigríði Andersen, en Ástráður hafði þá gegnt trúnaðarstörfum fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð og Alþýðubandalagið á árum áður.

Hér er bréf Jóhannesar Rúnars í heild sinni: 

Undirritaður sótti, í góðri trú og á faglegum forsendum, um embætti dómara við Landsrétt, sem auglýst var laust til umsóknar í febrúar sl.  

Dómsmálaráðherra ákvað hinn 29. maí sl. að ganga framhjá umsókn minni þrátt fyrir að sérstök fagleg dómnefnd, sem skipuð er af ráðherra og starfar samkvæmt lögum, hefði komist að þeirri niðurstöðu að ég væri meðal þeirra 15 umsækjenda sem nefndin taldi hæfasta til að gegna embætti dómara við Landsrétt.  Meirihluti Alþingis staðfesti ákvörðun dómsmálaráðherra þann 1. júní sl. 

Stjórnskipun lýðveldisins byggir á þrígreiningu ríkisvaldsins, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar. Með ákvörðunum sínum eru tvær greinar ríkisvaldsins, framvæmdavaldið, hér dómsmálaráðherra, og löggjafarvaldið, Alþingi, að hlutast til um skipan þeirrar þriðju, dómsvaldsins. Stjórnvöld eru bundin af lögum og ákvarðanir þeirra verða að eiga sér stoð í lögum.

Það er valdníðsla þegar stjórnvald misnotar opinbert vald með þeim hætti að ólögmæt og ómálefnaleg sjónarmið, svo sem vinátta, flokkshagsmunir eða óvild, ráða ákvörðun þess. Í bók Páls Hreinssonar, hæstaréttardómara og dómara við EFTA dómstólinn, Stjórnsýslulögin – skýringarrit, segir á bls. 126: „Að baki sérhverri stjórnvaldsákvörðun verða að búa málefnaleg sjónarmið. Það er ótækt að geðþótti eða hrein tilviljun ráði niðurstöðu máls. Af þessum sökum eru stjórnvöld að lögum bundin við að byggja matskenndar ákvarðanir sínar á málefnalegum sjónarmiðum. Þess vegna eru málefnaleg sjónarmið aðeins lögmæt.“

Fyrir liggur að meta þarf hvort málsmeðferð við skipun dómara við Landsrétt hafi verið lögmæt eða ólögmæt, þar með hvort ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja frá niðurstöðu hinnar faglegu dómnefndar hafi verið byggð á málefnalegum sjónarmiðum eða ekki.

Dómsmálaráðherra bar skilyrðislaust að velja þá 15 einstaklinga sem hæfastir voru meðal umsækjenda í embætti dómara við Landsrétt, án tillits til kynferðis, skoðana eða stöðu.

Málsmeðferð dómnefndarinnar, þar sem umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt voru metnir innbyrðis, var mjög yfirgripsmikil, fagleg og vönduð og tók margar vikur. Óháð því hvort niðurstaða nefndarinnar um það hverjir teldust hæfastir meðal umsækjenda var efnislega rétt eða röng, eða hvort menn eru sammála eða ósammála henni, þá fól mat dómnefndarinnar í sér, að umsækjendur voru, allir sem einn, metnir á jafnréttisgrunni, af sama fólkinu, á sama tíma og umfram allt á sömu forsendum.

Það hefði átt að vera grundvallarforsenda fyrir ákvörðun dómsmálaráðherra, um að víkja frá niðurstöðu dómnefndarinnar, að ákvörðun hennar og aðdragandi væri jafn vandaður og málsmeðferð og ákvörðun nefndarinnar. Ráðherrann þurfti auk þess að fylgja lögum við ákvörðun sína og þar með að byggja ákvörðun sína á málefnalegum sjónarmiðum. Hafi ráðherrann ekki gert það þá er ákvörðun hennar ólögmæt. 

Færa má fyrir því sterk rök að málsmeðferð dómsmálaráðherra hafi verið andstæð lögum og að réttur hafi verið brotinn á þeim umsækjendum sem hún ákvað að fella brott af lista dómnefndarinnar. 

Rökstuðningur dómsmálaráðherra fyrir því að víkja frá niðurstöðu nefndarinnar stenst auk þess enga efnislega skoðun. Rökstuðningur ráðherrans er almenns eðlis, ógagnsær og óljós. Hvergi er sem dæmi vikið að því hvers vegna ráðherra taldi rétt að ganga framhjá þeim tilteknu fjórum umsækjendum sem hún gerði né hvers vegna hún kaus að velja nákvæmlega þá fjóra umsækjendur í þeirra stað sem hún valdi, fremur en til að mynda aðra umsækjendur. Rétt er að undirstrika að sjónarmið um að jafna stöðu karla og kvenna voru ekki meðal þeirra raka sem dómsmálaráðherra vísaði til í rökstuðningi sínum og ættu þar af leiðandi ekki að koma til frekari skoðunar í þessu samhengi. 

Hefði dómsmálaráðherra byggt á sjónarmiðum um kynjajafnrétti við ákvörðun sína, sem hún gerði ekki samkvæmt framansögðu, þá hefði ráðherrann engu að síður fyrst þurft að færa fullnægjandi rök fyrir því að um jafn hæfa umsækjendur væri að ræða, eftir að hafa sannreynt það á áreiðanlegan og vandaðan hátt. Þá fyrst gat reynt á kynjasjónarmið í þessu samhengi en fyrr ekki.

Samkvæmt lögum um dómstóla getur dómsmálaráðherra ekki skipað í dómaraembætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, hvort heldur er einn eða samhliða öðrum, nema Alþingi heimili slíkt. 

Alþingi bar að kynna sér forsendur dómsmálaráðherra fyrir því að víkja frá niðurstöðu dómnefndarinnar, áður en ákvörðun var tekin og fullvissa sig um að forsendur ráðherrans væru málefnalegar og réttar. Alþingi var kunnugt um marga þeirra annmarka sem voru á málsmeðferð og rökstuðningi dómsmálaráðherra fyrir ákvörðun hennar um að víkja frá niðurstöðu dómnefndarinnar, áður en atkvæðagreiðsla fór fram á Alþingi um málið. Meirihluti Alþingis ákvað þrátt fyrir það að staðfesta tillögur dómsmálaráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Saga Landsréttarmálsins: Hver ber ábyrgð?
ÚttektSkipun dómara við Landsrétt

Saga Lands­rétt­ar­máls­ins: Hver ber ábyrgð?

Yf­ir­deild MDE átel­ur Sig­ríði And­er­sen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, fyr­ir þátt henn­ar í Lands­rétt­ar­mál­inu. Hæstirétt­ur og Al­þingi, þá und­ir meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisn­ar og Bjartr­ar fram­tíð­ar, fá einnig gagn­rýni. Yf­ir­deild­in seg­ir gjörð­ir Sig­ríð­ar vekja rétt­mæt­ar áhyggj­ur af póli­tískri skip­un dóm­ara.
Fjölskylduvítið
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
PistillSkipun dómara við Landsrétt

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Fjöl­skyldu­vít­ið

Ís­lenska stjórn­mála­fjöl­skyld­an hef­ur öll meg­in­ein­kenni sjúkr­ar fjöl­skyldu út frá kenn­ing­um um með­virkni enda al­in upp við sjúk­leg­ar að­stæð­ur. Í því ljósi er for­vitni­legt að skoða „póli­tískt at og óvirð­ingu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Strass­bourg við Al­þingi Ís­lend­inga“ sem „skipt­ir víst engu máli þeg­ar upp er stað­ið“.
Yfirlýstur andstæðingur Mannréttindadómstólsins flutti erindi á afmæli Hæstaréttar
FréttirSkipun dómara við Landsrétt

Yf­ir­lýst­ur and­stæð­ing­ur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins flutti er­indi á af­mæli Hæsta­rétt­ar

Dansk­ur pró­fess­or sem er þekkt­ur fyr­ir að vilja að Dan­ir hætti að lúta dóm­um Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu flutti ávarp á af­mæl­is­sam­komu Hæsta­rétt­ar. Boð­ið vek­ur at­hygli þar sem máls­með­ferð Ís­lands vegna Lands­rétt­ar­máls­ins hjá yf­ir­deild MDE stend­ur nú yf­ir.

Mest lesið

Það er búið að einkavæða hafið og færa örfáum á silfurfati
4
Allt af létta

Það er bú­ið að einka­væða haf­ið og færa ör­fá­um á silf­urfati

Kjart­an Páll Sveins­son, formað­ur Strand­veiði­fé­lags­ins, elsk­ar haf­ið út af líf­inu, eins og hann orð­ar það, og vill ekki að það sé tek­ið af hon­um eða öðr­um Ís­lend­ing­um. Hann seg­ir haf­ið hafa ver­ið tek­ið af þjóð­inni, einka­vætt og fært ör­fá­um á silf­urfati. Hann vill að strand­veiði fái stærri hluta úr pott­in­um og pott­ur­inn fyr­ir aðra en kvótakónga stækki.
Jón Gnarr segir að ísraelskir landnemar í Palestínu þurfi að hypja sig
5
FréttirForsetakosningar 2024

Jón Gn­arr seg­ir að ísra­elsk­ir land­nem­ar í Palestínu þurfi að hypja sig

Jón Gn­arr lýs­ir yf­ir harðri and­stöðu við stríð­ið í Palestínu í ný­legu við­tali í hlað­varp­inu Vakt­inn. Hann vill taf­ar­laust vopna­hlé, póli­tíska end­ur­nýj­un í Ísra­el og að land­töku­byggð­ir Ísra­els í Palestínu verði lagð­ar nið­ur. „Það þarf bara að jafna þetta við jörðu og segja þessu liði að hypja sig.“
Ármann um Ortus: „Hef aldrei gætt neinna annarra hagsmuna en bankans“
7
Fréttir

Ár­mann um Ort­us: „Hef aldrei gætt neinna annarra hags­muna en bank­ans“

Ár­mann Þor­valds­son, for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku banka, seg­ist hafa selt hluta­bréf sín í breska fast­eigna­fé­lag­inu Ort­us til Stoða ár­ið 2018. Tveim­ur ár­um síð­ar komu Stoð­ir inn í hlut­hafa­hóp Kviku og Ár­mann kom að því sem stjórn­andi hjá Kviku að kaupa hluta­bréf­in í Ort­us til baka af Stoð­um á upp­sprengdu verði.
„Kapítalismi án samkeppni er arðrán“
10
Fréttir

„Kapí­tal­ismi án sam­keppni er arð­rán“

Í nítj­ánda þætti Pressu komu for­svars­menn Neyt­enda­sam­tak­anna, VR og Fé­lags at­vinnu­rek­anda til þess að ræða ný­leg­ar laga­breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um og stöðu sam­keppn­is­mála hér á landi al­mennt. Þá ræddu for­menn­irn­ir einnig ný­lega skýrslu um ólög­legt verð­sam­ráð skipa­fé­lag­anna og hugs­an­leg­ar lög­sókn­ir vegna sam­keppn­is­brot­anna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
2
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Undirskriftir gegn Bjarna orðnar fleiri en greidd atkvæði Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgarsvæðinu
4
Fréttir

Und­ir­skrift­ir gegn Bjarna orðn­ar fleiri en greidd at­kvæði Sjálf­stæð­is­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Á ein­ung­is tveim­ur dög­um hafa um 34 þús­und ein­stak­ling­ar skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ista þar sem lýst er yf­ir stuðn­ings­leysi við Bjarna Bene­dikts­son í embætti for­sæt­is­ráð­herra. Fjöldi und­ir­skrifta vex hratt og eru þær nú orðn­ar fleiri en þau at­kvæði sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk greidd á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í síð­ustu Al­þing­is­kosn­ing­um.
„Þetta er móðgun við okkur“
7
Fréttir

„Þetta er móðg­un við okk­ur“

Heim­ild­in ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ist­ann: Bjarni Bene­dikts­son hef­ur ekki minn stuðn­ing sem for­sæt­is­ráð­herra til þess ein­fald­lega að spyrja: hvers vegna? Svör­in voru marg­vís­leg en þau átta sem svör­uðu sím­an­um höfðu marg­vís­leg­ar ástæð­ur fyr­ir því en áttu það öll sam­eig­in­legt að treysta ekki Bjarna sök­um fer­ils hans sem stjórn­mála­manns og sér í lagi síð­ustu mán­uði þar sem hann hef­ur far­ið frá því að vera fjár­mála­ráð­herra yf­ir í það að vera ut­an­rík­is­ráð­herra og loks for­sæt­is­ráð­herra.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Bankasýslan getur ekki gert grein fyrir tug milljóna kaupum á þjónustu
4
Viðskipti

Banka­sýsl­an get­ur ekki gert grein fyr­ir tug millj­óna kaup­um á þjón­ustu

Frá því að til­kynnt var að leggja ætti nið­ur Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mót­um þá keypti stofn­un­in þjón­ustu fyr­ir 57,4 millj­ón­ir króna. Hún get­ur ekki svar­að því nema að hluta af hverj­um hún keypti þessa þjón­ustu. Mest af því sem stofn­un­in get­ur gert grein fyr­ir fór til Logos, eða alls 15,3 millj­ón­ir króna á átta mán­uð­um í fyrra.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
5
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár