Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Íslendingurinn vinnur alltaf

Bók­in Ís­lend­ing­ur­inn vinn­ur alltaf – líf í skyn­villu­landi – hef­ur set­ið á met­sölu­lista í Finn­landi svo mán­uð­um skipt­ir. Höf­und­ur bók­ar­inn­ar, Satu Rä­mö, hef­ur bú­ið á Ís­landi í tíu ár. Í bók­inni skrif­ar hún um eig­in reynslu af sam­skipt­um við Ís­lend­inga og seg­ir sög­ur af létt­geggj­uðu sam­fé­lagi sem hún seg­ist þríf­ast vel í sjálf.

Islantilainen voittaa aina. Elämää hurmaavien harhojen maassa. Þannig er titillinn á einni af vinsælustu kiljum Finnlands undanfarinna mánaða en hann má þýða þannig: Íslendingurinn vinnur alltaf. Saga af lífi í skynvillulandi. Höfundur bókarinnar er finnski blaðamaðurinn, leiðsögumaðurinn og verslunareigandinn Satu Rämö. Hún segir nokkra íróníu í titlinum en á sama tíma kristallist í honum munurinn á Íslandi og Finnlandi, Íslendingum og Finnum. Þeir frændur okkar klóri sér oft í höfðinu yfir því hvað allt virðist ganga hratt og vel fyrir sig hjá Íslendingunum. „Í Finnlandi hugsum við allt í þaula og við erum mjög varkár. Allt er svo vel planað að við höfum aldrei tíma til að gera neitt. Hér á Íslandi gerist allt þvert á móti hratt. Ég fann fyrir honum um leið og ég flutti hingað, hraðanum. Hann er að mörgu leyti jákvæður en að öðru leyti ekki, eins og ég segi frá í bókinni. Þetta er ekki þessi dæmigerða „Ísland – best í heimi“ bók.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu