Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Hannaði límmiða fyrir verðandi nauðgara

Ósk Gunn­laugs­dótt­ir hef­ur hann­að límmiða og umb­un­ar­spjöld fyr­ir verð­andi nauðg­ara. Hún seg­ir límmið­ana ekki til höf­uðs gla­salímmið­um Þór­unn­ar Ant­on­íu, held­ur við­bót í flóru límmiða sem eiga að koma í veg fyr­ir nauðg­an­ir.

Hannaði límmiða fyrir verðandi nauðgara
Hannaði umbunarkerfi fyrir verðandi nauðgara Ósk Gunnlaugsdóttir velti því fyrir sér hvernig límmiðar gætu spornað við kynferðisofbeldi og þetta var útkoman. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þetta virkar vel, ég get staðfest það sem móðir,“ segir Ósk Gunnlaugsdóttir, en hún hefur hannað límmiðaumbunarkerfi fyrir verðandi nauðgara. Hugmyndin er að verðandi nauðgari umbuni sér með einum límmiða í hvert sinn sem hann nauðgar ekki. Þegar hann hefur safnað sex límmiðum á hann að launa sjálfum sér með verðlaunum. 

Uppátæki Óskar má flokka sem viðbrögð við sérstökum límmiðum sem eiga að koma í veg fyrir að viðkomandi verði byrlað nauðgunarlyfjum, en Þórunn Antonía, söngkona og kynningar- og markaðsstjóri tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice, lét útbúa límmiðana. Guðni Th. Jóhannesson forseti er verndari verkefnisins og tekur þátt í að vekja athygli á því. Þórunn sagði frá því í viðtali við Vísi að hugmyndin hefði kviknað út frá sorg og vanmáttarkennd stúlku sem er henni far kær og var byrlað lyf á skemmtistað og nauðgað. Einnig segist Þórunn hafa fylgst með máli Birnu Brjánsdóttur og hafa upplifað að Birnu hefði verið byrluð ólyfjan.

Vara við hættulegri markaðssetningu

Límmiðarnir hafa vakið ansi hörð viðbrögð en á meðal þeirra sem gagnrýnir verkefnið er Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Konur eiga að geta skemmt sér án límmiða yfir glasinu sínu. Það má heldur ekki verða konu „að kenna“ ef henni eru byrluð lyf því hún hafði ekki límmiða á drykknum,“ sagði Hildur. 

Þá hefur pistill Hildar Lilliendahl Viggósdóttur um verkefnið vakið talsverða athygli. „Mark­aðs­setn­ing á tækjum og tólum sem eru hugsuð til þess að konur geti varið sig fyrir kyn­ferð­is­of­beldi er hættu­leg. Fram­boðið eitt og sér á slíkum vörum er skað­legt kon­um. Þegar mark­að­ur­inn er orð­inn fullur af ísmol­um, prik­um, naglalökkum og lím­miðum sem konur „mega“ nota og „geta“ not­að, þá er orðið mjög stutt í að við förum að spyrja spurn­ing­ar­inn­ar: „af hverju not­aði hún það ekki?““ skrifar Hildur meðal annars.

Vill beina athyglinni í rétta átt

Ósk segist í kjölfarið hafa velt því fyrir sér hvernig límmiðar gætu forðað kynferðisofbeldi og fannst rétta leiðin að ráðast að rót vandans sem liggi hjá gerendunum. „Þetta er viðbót við glasalímmiðana,“ segir hún. „Þetta er ekki til höfuðs þeim, en ef við ætlum að nota límmiða til að uppræta kynferðisofbeldi þá er þetta mín leið. Mér finnst hún í það minnsta beinast að réttum aðilum, gerendum en ekki brotaþolum.“ Ósk segist því sammála gagnrýninni sem verkefnið fékk á sig í gær. Þó svo að ásetningurinn hafi eflaust verið góður, þá sé verkefnið vanhugsað og beinist í ranga átt, segir Ósk. 

„Þolandinn á ekki að koma í veg fyrir að sér sé nauðgað, heldur ættum við að beina orkunni í að stöðva gerandann. Þegar hann hefur tekið ákvörðun um að nauðga þá skiptir engu máli að Sigga sé með límmiða fyrir glasinu, því Gunna er ekki með límmiða. Hún er heldur ekki á Secret Solstice, heldur að skemmta sér á Húrra og þar er enginn með límmiða.“ 

Svarar gagnrýnisröddum

Þórunn Antonía svaraði gagnrýninni sem verkefnið hefur fengið á Facebook-hópnum „Góða systir“ fyrr í dag. Hún segist fagna umræðunni og að það hafi verið markmiðið að skapa hita, rökræður og gagnrýni, en það hafi auðvitað ekki verið markmiðið að varpa ábyrgðinni á konur. 

„Ég tek leigubíl heim á kvöldin þegar það eru fullir dómgreindarskertir einstaklingar á ferð. Ég legg ekki töskuna mína frá mér á skemmtistað því það er líklegra að henni verði stolið. Það er nefnilega þannig að það er til fólk sem stelur. 

Ég ætti ekki að þurfa að passa stöðugt upp á töskuna, en ég tek ábyrgð á því öryggi sem ég get veitt sjálfri mér því heimurinn er ekki búinn til úr bleikum sykurpúða þar sem við getum öll verið blindfull og enginn nýtir það ástand sem þú ert í.

Afhverju er alltaf verið að verja það að allir geti bara djammað og verið áhyggjulausir meðan maður drekkur drykk sem skerðir dómgreind. Skert dómgreind sem verður kannski frekar til þess að nauðgarar nauðgi eða að fólk komi sér í hættulegri aðstæður en ella. Ræðum það, sköpum öryggi og samstöðu,“ skrifar Þórunn Antonía meðal annars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
1
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
7
Fréttir

Millj­arð­ar kvenna sem passa ekki inn í út­lits­box­ið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki leng­ur í tísku og að Bridget Jo­nes sé ekki leng­ur tal­in feit, eru út­lit­s­kröf­ur til nú­tíma­kvenna enn óraun­hæf­ar, seg­ir pró­fess­or í fé­lags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áð­ur hafi ver­ið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smán­að út af út­liti.“
Birgir segir mistök að ekki sé gert ráð fyrir nýrri kvennadeild á nýja Landspítalanum
9
Fréttir

Birg­ir seg­ir mis­tök að ekki sé gert ráð fyr­ir nýrri kvenna­deild á nýja Land­spít­al­an­um

Í störf­um þings­ins ræddu þing­menn ým­is mál. Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir gagn­rýndi Sam­fylk­ing­una, Birg­ir Þór­ar­ins­son benti á myglu­vanda­mál Land­spít­al­ans og sér­stak­lega þá stöðu sem er kom­in upp á kvenna­deild­inni. Gagn­rýndi hann að ekki væri gert ráð fyr­ir nýrri kvenna­deild í bygg­ingu nýja Land­spít­al­ans. Jó­hann Páll Jó­hann­es­son benti á að eins og stað­an er í dag geti smá­lána­fyr­ir­tæki not­fært sér neyð fólks og grætt á þeirra stöðu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
2
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
4
FréttirLaxeldi

Rík­is­stjórn­in vill gefa kvót­ann í lax­eld­inu um ald­ur og ævi

Í frum­varpi mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi er kveð­ið á um að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in í land­inu hafi „ótíma­bund­in“ rekstr­ar­leyfi til að stunda sjókvía­eldi í ís­lensk­um fjörð­um. Hing­að til hafa rekstr­ar­leyf­in ver­ið tíma­bund­in í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórn­völd á Ís­landi ekki geta bann­að sjókvía­eldi án þess að baka sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
6
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
7
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
8
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
9
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár