Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, fundaði með Dunju Mijatovic, fulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu um fjölmiðlafrelsi, í dag.
Mijatovic er stödd á Íslandi og hélt erindi við Háskóla Íslands í hádeginu.
Að því er fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins lýsti Gunnar Bragi „eindregnum stuðningi Íslands við starf Mijatovic, sem byggir á því að standa vörð um tjáningarfrelsið, og því að frjálsir, óháðir og fjölbreyttir fjölmiðlar eru forsenda þess að lýðræði fái þrifist og stjórnvöldum sé sýnt nauðsynlegt aðhald“.
Athugasemdir