Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra telur ekki ólíklegt að þingmenn sem fengu háa styrki frá aðilum í sjávarútvegi hafi gengið sérstaklega hart fram í andstöðu sinni við viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi. Þetta sagði hann í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Hann sagði sjávarútvegsfyrirtæki hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn dyggilega sem og einstaka þingmenn í prófkjörum. Gunnar Bragi vildi ekki nefna nein nöfn, en sagðist vita af þingmönnum sem hefðu fengið styrki frá aðilum í sjávarútvegi og sagði jafnframt fróðlegt að skoða hvort þeir hefðu farið sérstaklega hart fram í tala fyrir þeirra málstað. „Mér finnst það ekki ólíklegt,“ sagði Gunnar Bragi. „Þetta er gríðarlega sterkur þrýstihópur sem er þarna á ferðinni og það reynir á stjórnmálamenn að þeir standist slíkan þrýsting. Ég vonast að sjálfsögðu til að menn geri það, því menn verða að horfa á heildarhagsmunina. Þetta er ekkert flókið í mínum huga.“ Í viðtalinu sagðist Gunnar Bragi ekki ætla að skipta um skoðun og hætta þátttöku í refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna Úkraínudeilunnar enda vegi hagsmunir Íslands þyngra en hagsmunir einstakra sjávarútvegsfyrirtækja.
Styrktu Jón Gunnarsson um milljón
Stundin kannaði hvaða þingmenn Sjálfstæðisflokksins sjávarútvegsfyrirtækin styrktu fyrir síðustu kosningar. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra er þar efstur á blaði með 1,3 milljónir en næstur kemur Jón Gunnarsson.
Athugasemdir