Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Fylgst með fastagestum úr kafi

Fast­ur punkt­ur í til­veru fjölda fólks er að byrja dag­inn í sund­laug­inni. Kolfinna Mjöll Ás­geirs­dótt­ir hef­ur lengi ver­ið for­vit­in um fólk­ið sem synd­ir með­an aðr­ir sofa. Hún varði nokkr­um morgn­um á með­al fasta­gesta Vest­ur­bæj­ar­laug­ar, fylgd­ist með þeim úr kafi og hlustaði á sam­ræð­urn­ar í pott­un­um. Hún komst fljótt að raun um að það er ekki bara hreyf­ing og frískt loft sem lað­ar fólk að laug­un­um, held­ur er það líka vinátt­an sem bind­ur sund­hóp­ana sam­an.

Fyrir allar aldir á virkum morgnum standa nokkrar manneskjur við dyr Vesturbæjarlaugar. Þær mæta helst á undan starfsmönnum laugarinnar, hanga á húninum og bíða eftir því að klukkan slái 6.30. Þaðan er nafn þeirra komið – Húnarnir. Skömmu síðar, upp úr klukkan sjö, mæta svo Vinir Dóra í laugina. Þeir synda sína spretti, bregða sér í pottinn og gufuna. Klukkan hálf átta á slaginu kallar Dóri – Halldór Bergmann Þorvaldsson – hópinn upp á bakkann til sín, sama hvernig viðrar eða hvaða árstími er. Þar taka við kröftugar Müllers-æfingar. Þegar líður á morguninn mætir svo annar öflugur hópur í laugina. Þar er kominn hópur eldri borgara, sem dreifir sér um laugina og gerir sínar leikfimiæfingar. 

Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir, kennari og ljósmyndari, hefur lengi verið heilluð af sundmenningunni, sem er flestum hulin en er þessum hópum órjúfanlegur hluti hversdagslífsins. Alla sína barnæsku fylgdist Kolfinna með hraustri móður sinni fara af heimilinu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár