Nýtt efni
Lenya ætlar að koma sterkari til baka í næstu kosningum
Lenya Rún Taha Karim, þingmaður Pírata og mastersnemi í lögfræði, segir að hún hafi snemma ákveðið að láta niðurstöður alþingiskosninganna árið 2021 ekki á sig fá, heldur nýta tímann vel og mennta sig.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
Í frumvarpi matvælaráðherra um lagareldi er kveðið á um að laxeldisfyrirtækin í landinu hafi „ótímabundin“ rekstrarleyfi til að stunda sjókvíaeldi í íslenskum fjörðum. Hingað til hafa rekstrarleyfin verið tímabundin í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórnvöld á Íslandi ekki geta bannað sjókvíaeldi án þess að baka sér skaðabótaskyldu gagnvart laxeldisfyrirtækjunum.
Barist í bökkum velferðarsamfélags
Í 20. þætti af Pressu verður fjallað um versnandi fjárhagsstöðu fjölda heimila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kannanir hafa að undanförnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnumarkaði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt.
Samfélagslega viðurkennd skotmörk
Fitufordómar grassera innan heilbrigðiskerfisins og úti í samfélaginu segja fjórar konur sem hafa um árabil barist fyrir því að jöfn virðing sé borin fyrir öllum líkömum. Prófessor í sálfræði segir fitufordóma einu hleypidómana sem enn séu samþykktir í nútímasamfélögum.
Þórður Snær Júlíusson
Handbók um leiðir til að þykjast siðlegur ráðherra
Á Íslandi er við lýði regluverk sem á að koma í veg fyrir spillingu ráðherra og auka traust á stjórnsýslu. Nýlega var gefin út handbók með útskýringum á reglunum með raunhæfum dæmum. Raunveruleikinn sýnir hins vegar að ráðherrar láta þetta ekki hafa áhrif á hegðun sína. Reglurnar gilda bara þegar það reynir ekki á þær.
Kostnaður við árshátíð fram úr skattfrelsi: „Ekki einhver trylltur glamúr“
Kostnaður á hvern starfsmann við árshátíð Landsvirkjunar fór fram úr skattfrjálsum kostnaði um 34 til 230 þúsund á mann, eftir því hvernig á það er litið, og gæti starfsfólkið því þurft að greiða skatt af þeim krónum. Landsvirkjun ætlar, að sögn upplýsingafulltrúa, að fara að lögum og reglum um skattskil en gefur ekki uppi hvernig uppgjörinu er háttað gagnvart starfsfólkinu.
Barist í bökkum velferðarsamfélags
Í Pressu verður fjallað um versnandi fjárhagsstöðu fjölda heimila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kannanir hafa að undanförnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnumarkaði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt.
Enginn forsetaframbjóðandi nær þriðjungsfylgi
Katrín Jakobsdóttir og Baldur Þórhallsson mælast með mest fylgi í fyrstu kosningaspá Heimildarinnar vegna komandi forsetakosninga. Auk þeirra skipa Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir efstu sætin. Atkvæði virðast dreifast mun víðar nú en fyrir átta árum, þegar nýr forseti var kjörinn síðast.
Spurningaþraut Illuga 19. apríl 2024 — Hvað nefnist dýrið? og 16 aðrar spurningar
Hér geta lesendur spreytt sig á spurningaþraut Illuga Jökulssonar sem birtist í tölublaði Heimildarinnar 19. apríl.
Á Íslandi ólst ég upp sem manneskjan sem mig langaði að verða
Klāvs Liepiņš er listamaður sem flutti til Íslands fyrir tíu árum síðan til að fara í dansnám. Á Íslandi fékk hann að verða manneskjan sem hann langaði alltaf að verða. Fyrir tilviljun fékk hann vinnu í kvikmyndabransanum sem hann elskar því í þeim bransa er enginn dagur eins.
11 ára stúlka fann stærsta sæskrímsli sögunnar
Ruby Reynolds og pabbi hennar voru að vappa í fjörunni við Somerset á Bretlandi þegar hún kom auga á nokkuð sem hafði verið grafið í fjöruborðinu í 205 milljónir ára.
Samtökin '78 kæra grunnskólakennara fyrir hatursorðræðu
Samtökin '78, hagsmunafélag hinsegin fólks á Íslandi, hafa kært Helgu Dögg Sverrisdóttur grunnskólakennara til lögreglu fyrir hatursorðræðu í garð hinsegin fólks. Helga hefur skrifað mikið um skoðanir sínar á málefnum trans fólks á bloggsíðu sinni.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur staðið fyrir stóraukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einkaaðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Endurheimtu foreldra sína frá Gaza: „Þeir eru að springa úr gleði“
Ungir palestínskir drengir sem senda átti úr landi í desember hafa nú sameinast foreldrum og systkinum sínum sem sluppu frá Gaza. „Maður bara grét úr gleði hreinlega. Það er ekki hægt að segja neitt annað en það,“ segir íslensk fósturmóðir annars þeirra.
Draga upp dökka mynd af stöðu húsnæðismála í landinu
Ný mánaðarskýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dregur upp dökka mynd af stöðu húsnæðismála hér á land. Framboð á íbúðum hefur minnkað, eftirspurn aukist sem hefur leitt af sér miklar verðhækkanir. Þá hefur uppbygging á í nýju húsnæði dregst saman. Fjölgi áformuðum framkvæmdum ekki á þessu ári mun framboð nýrra íbúða aðeins mæta þriðjungi af væntri húsnæðisþörf fyrir árið 2026.