Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

„Ef hún hefði ekki kallað í mig hefði ég lent undir“

Vin­kon­urn­ar Tinna Marín og Bryn­dís voru hárs­breidd frá því að lenda und­ir hlassi frá bygg­ingakr­ana sem gaf sig yf­ir bíla­stæð­inu við Bæj­ar­ins bestu í mið­bæ Reykja­vík­ur í dag.

„Bryndís bjargaði lífi mínu og ég er búin að þakka henni mjög fyrir það. Ég heyrði alveg lætin en ef hún hefði ekki kallað í mig hefði ég lent undir þessu,” segir Tinna Marín Sigurðardóttir og vinkona hennar, Bryndís Bridde, grípur orðið: „Þetta er búinn að vera skrýtinn dagur. Við erum líka búnar að fara í svo mörg viðtöl! Ég hef aldrei verið svona fræg áður!”

Þær hlæja báðar og það er mun léttara yfir þeim núna en fyrir nokkrum tímum, þegar þær voru hársbreidd frá því að lenda undir þungu hlassi frá byggingakrana yfir planinu Bæjarins bestu í miðbæ Reykjavíkur. Þær voru í hádegishléi úr Kvennaskólanum, sátu á bekk og voru nýbúnar að sporðrenna hvor sinni pylsunni þegar Bryndís sá kranann yfir þeim byrja að gefa sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár