Davíð Oddsson, sem býður sig fram til forseta Íslands, hefur áhyggjur af „uppgangi múslima í Evrópu“. Þetta kom fram í viðtali við hann á Bylgjunni í morgun. „Ég held að múslimar séu ekkert síðra fólk í gerðinni, af hverju ættu þeir að vera það?“ sagði Davíð og bætti því við að fólk sem aðhylltist íslam væri „mjög bundið á þessa hörkulegu trú og því er stjórnað mjög víða af ofstækismönnum“.
Davíð sagðist vera kunningi Recep Erdogans Tyrklandsforseta og er uggandi yfir þróuninni í Tyrklandi, enda hafi forsetinn hallað sér að ofstækisöflunum. „Konan hans er komin með slæður og allan þennan búning líka,“ sagði Davíð.
Þáttastjórnendur Bítisins spurðu Davíð um „uppgang múslima í Evrópu“ en jafnframt um afstöðu hans til móttöku flóttafólks. „Við verðum náttúrlega að vera með opinn huga gagnvart því að hjálpa okkar náungum, en hins vegar verður það að gerast þannig að það sé skynsemi í því,“ svaraði Davíð. „Ef fólk lagar sig ekki að hlutunum þá fer illa, bæði fyrir fólkinu sem kemur og fyrir þeim sem fyrir eru.“
Athugasemdir