Þetta byrjaði allt með kurteisishjali í anddyri Hvíta hússins. Blaðamaður Washington Post, Bob Woodward, var að bíða eftir fundi þegar hann hitti Mark Felt í fyrsta skipti. Þeir voru báðir að bíða og spjölluðu örlítið saman. Síðar, þegar brotist var inn á skrifstofu Demókrataflokksins í Watergate árið 1972, hafði Mark Felt samband við Woodward.
Mark Felt gaf blaðamanninum trúnaðarupplýsingar sem hjálpuðu honum að fletta ofan af einu alræmdasta pólitíska hneykslismáli allra tíma og varð Bandaríkjaforseta, Richard Nixon, að falli. Watergate-hneykslið, eins og það var kallað, afhjúpaði að innbrot í höfuðstöðvar Demókrataflokksins árið 1972 mátti rekja til forsetans. Innbrotsþjófarnir sem voru þar að verki höfðu þegið mútugreiðslur sem raktar voru til nánustu samstarfsmanna Nixon.
Til að ganga úr skugga um að leynd væri yfir samskiptunum vildi Mark Felt ekki veita upplýsingar til heimildarmanna sinna í gegnum …
Athugasemdir