„Fyrsti 1001 dagurinn í lífi barna, frá getnaði til 2ja ára, leggur grunninn að lífsgæðum og geðheilsu ævina á enda. Á þessu tímabili þroskast tilfinningalíf og heili barna meira en á nokkru öðru lífsskeiði en þá læra börn að finna til öryggis, að þau geti treyst fólki og séu elskuð. Þetta er undirstaða þess að þau geti myndað jákvæð tengsl við aðra og tekist á við áskoranir lífsins. Rannsóknir undanfarinna áratuga hafa varpað ljósi á hversu alvarleg áhrif skortur á stöðugleika, umhyggju og hlýju á meðgöngu og fyrstu árin geta verið. Þessi skortur veldur streitu sem getur haft áhrif á þroska barna og jafnvel óafturkræfar breytingar á heilastarfsemi.
Tímabilið frá getnaði til tveggja ára aldurs barns er oftast tími gleði og mikilla viðburða í lífi foreldra. Umbreyting á hlutverkum, ný verkefni, áður óþekktar tilfinningar og þarfir ásamt nýju álagi og óöryggi kalla því á fræðslu og stuðning fyrir verðandi foreldra. …
Athugasemdir