Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.

Gull og grænir skógar í boði LOFORÐAFLOKKSINS

Gull og grænir skógar í boði LOFORÐAFLOKKSINS

Kæri lesandi og kjósandi.

Mig langar fyrir hönd Loforðaflokksins að kaupa þig núna rétt fyrir kosningar og þar með þitt atkvæði. Það sem ég býð þér er eftirfarandi:

Enga skatta á öll laun.

Ókeypis heilsugæslu, heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu

Rosalega flottan lífeyri, svo þú getir lifað eins og greifi síðustu árin - innifalið; ókeypis jarðarför að æviskeiði loknu, að sjálfsögðu með blómum, krönsum og erfidrykku á kostnað ríkisins.

Frítt í bíó og út að borða á veitingastað að eigin vali einu sinni í mánuði.

Ókeypis utanlandsferð að eigin vali einu sinni á ári.

Öll lyf ókeypis.

Endurreisn Sædýrasafnsins, með alvöru öpum, ljónum og tígrísdýrum, sem ekki eru útúr-stressuð og grýta ekki skít í gestina (aðallega aparnir þó).

Ókeypis menntun, frá leikskóla og upp úr!

Lágmarkslaun = 500.000 á mánuði. Súper lága vexti og enga verðtryggingu, 24 mánaða fæðingarorlof, sem foreldrar ráða hvernig þeir skipta á milli sín.

Fría áskrift að öllum sportpökkum sjónvarpstöðvanna. Og barnaefni fyrir börnin - að sjálfsögðu!

Burt með alla helv... útlendinga, þeir geta bara hangið í sinni eymd heima hjá sér, okkur er sko alveg drullusama um það hvernig þeim farnast. Stríð í Sýrlandi - so what! 

Við vitum ekkert hvernig við ætlum að fjármagna þetta, en það skiptir engu andsk.... máli. 

Það sem skiptir okkur máli er að lofa gulli og grænum skógum, þannig að þú verðir svo "high" af loforðavímunni að þú merkir ósjálfrátt við X-Y í kjörklefanum. 

Með okkur í Loforðaflokknum, verður líf þitt áhyggjulaus dans á rósum og þegar þú ert einu sinni búinn að kjósa loforðaflokkinn - þá muntu ALDREI kjósa neitt annað.Það er okkar markmið og hamingja þín er í okkar boði.

Okkur í Loforðaflokknum langar svo bara sjúklega mikið í öll völdin í landinu, að okkur er alvega nákvæmlega sama hvað við þurfum að segja til þess að fá atkvæði þitt og aðganginn að kjötkötlunum - tilgangurinn helgar meðalið. Heiðarleiki er lummó! Ekki vera asni og pæla í hinum flokkunum - kjóstu okkur og lifðu í vellystingum það sem eftir er. Þú munt ekki sjá eftir því. Við LOFUM!

Höfundur er í 3ja sæti Dögunar í Suðvesturkjördæmi og vill taka það fram að DÖGUN hefur EKKERT með Loforðaflokkinn að gera og að DÖGUN stundar ekki loforðasukk. 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu