Pírtar með keflið: Hvað segir Davíð nú?
Það eru stórtíðindi að forystumaður nýs stjórnmálaafls fái umboð til stjórnarmyndunar. Í byrjun átti að beita svokölluðu Lúðvíksbragði á Pírata, það er að flokkurinn væri ekki stjórnhæfur. Það hefur forsetinn hrakið. Til hamingju
Sagan er svona:
Þriðjudaginn 15. ágúst [1978] skilaði Geir stjórnarmyndunarumboðinu. Samdægurs leitaði Lúðvík Jósepsson fundar með forseta. Sagði Lúðvík „að ekki væri endalaust hægt að ganga fram hjá Alþýðubandalaginu og fara með það eins og eitt sinn var farið með ljótu börnin hennar Evu“. Því var Kristján Eldjárn sammála. Degi síðar fékk formaður Alþýðubandalagsins umboð til stjórnarmyndunar. Hefðu Sveinn Björnsson og Ásgeir Ásgeirsson sýnt leiðtoga þess flokks, sem lengst var til vinstri í íslenskum stjórnmálum, slíkan trúnað? Forystugrein Morgunblaðsins næsta morgun hófst með þessum orðum: „Þá hefur forseti Íslands orðið við kröfu Lúðvíks Jósepssonar og kommanna um að hann geri tilraun til stjórnarmyndunar.“ Þessum orðum snöggreiddist forseti. Hann hringdi í Matthías Johannessen, fékk upp úr honum að hann hefði haldið á penna og sleit þá samtalinu.
[...] Lúðvík Jósepssyni mistókst að koma stjórn saman en grunnur var lagður að samstarfi þriggja flokka, Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Í lokin fékk umboð forseta Ólafur Jóhannesson, sá sem mestu hafði tapað í kosningunum og var í augum margra innan hinna flokkanna holdgervingur siðleysis í stjórnmálum. Lúðvík hefði getað sagt sem svo að í annað skipti í sögunni hefði maður myndað stjórn fyrir annan. Ólafur Jóhannesson varð forsætisráðherra. Föstudaginn 1. september tók seinni ríkisstjórn hans við völdum. Heilir tveir mánuðir voru þá liðnir frá kosningum.
Guðni Th. Jóhannesson: "Eins hlutlaus og verða má." Stjórnarmyndanir í tíð Kristjáns Eldjárns.
Guðni Th. Jóhannesson: "Eins hlutlaus og verða má." Stjórnarmyndanir í tíð Kristjáns Eldjárns.
Nú hefur forsetinn veitt Birgittu Jónsdóttur umboð til stjórnarmyndunar og vafalaust mun Morgunblaðið bregðast við. Guðni Th. fer slóðir Kristjáns Eldjárns. Ætli Framsóknarflokkur myndi svo stjórn eftir allt?
Urgur ritstjóra Morgunblaðsins var enn kraumandi 2004 enda þáverandi forseti ekki besti vinur Moggans:
-Stjórnarmyndunarumboð Lúðvíks
Morgunblaðið 13. júní 2004 | Ritstjórnargreinar.
-Gagnrýni Morgunblaðsins á sínum tíma á þá ákvörðun dr. Kristjáns Eldjárns, þáverandi forseta Íslands, að veita Lúðvík Jósepssyni, formanni Alþýðubandalagsins, umboð til stjórnarmyndunar sumarið 1978 kom lítillega til umræðu á fundi Sagnfræðingafélags Íslands og Félags stjórnmálafræðinga sl. miðvikudag. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur lýsti þeirri skoðun á fundinum, að ákvörðun Kristjáns hefði verið rétt.
Sagnfræðingurinn upplýsti að einn helzti ráðgjafi forsetans á þeim tíma hefði verið Baldur Möller og að Kristján Eldjárn hefði skrifað í dagbók sína:
"Baldur er á því, að ekki geti komið til mála annað en að veita Lúðvík næsta tækifæri. Allt sem hann sagði um þetta kom alveg heim við mínar hugsanir: Jafnvel þótt forseti vildi ganga fram hjá honum væri það fjarri öllum leikreglum í lýðræðisríki að sniðganga svo gróflega næststærsta stjórnmálaflokk landsins."
Þetta eru fróðlegar umræður eins og við má búast. En var gagnrýni Morgunblaðsins á þessum tíma ósanngjörn? Nei.
Alþýðubandalagið var arftaki Sameiningarflokks alþýðu-Sósíalistaflokks. Þessir tveir flokkar höfðu frá upphafi barizt gegn grundvallaratriðum íslenzkrar utanríkis- og öryggismálastefnu, sem var grundvallarþáttur í stjórnmálabaráttunni um fjögurra áratuga skeið. Þessir flokkar lágu undir sterkum grun, sem síðar hefur verið staðfestur með vísan í sögulegar og skriflegar heimildir, um að njóta beins og óbeins stuðnings frá Sovétríkjunum og að einhverju leyti frá Austur-Þýzkalandi. Þegar Lúðvík Jósepsson fékk umboð til að mynda ríkisstjórn á Íslandi voru aðeins fjögur ár liðin frá því að einhverjum hörðustu stjórnmálaátökum frá lýðveldisstofnun hafði lokið, þegar vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar gafst upp við að segja upp varnarsamningnum við Bandaríkin. Öll er sú saga rakin í merkri bók eftir dr. Val Ingimundarson, sem út kom fyrir nokkrum árum.
Lúðvík Jósepsson sem formaður Alþýðubandalagsins gat ekki notið trausts mikils meirihluta þjóðarinnar til þess að mynda ríkisstjórn á Íslandi á þeim tíma, sem hann fékk umboð til þess.-
Það eru stórtíðindi að forystumaður nýs stjórnmálaafls fái umboð til stjórnarmyndunar. Í byrjun átti að beita svokölluðu Lúðvíksbragði á Pírata, það er að flokkurinn væri ekki stjórnhæfur. Það hefur forsetinn hrakið. Til hamingju
Hvað mun Davíð segja?
Athugasemdir