Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.
Eldur í skúr útigangsmanns
Þjóðmálaþættir eru mismunandi. Yfirleitt er þá RÚV með ágætis þætti í morgunsárið en Bylgjan sjaldnar.
Nú voru þessar rásir með langar útleggingar á vörum úr kálfaskinni og eitrun katta í Hveragerði.
Daginn sem kennarar fylltu (enn einu sinni) Háskólabíó var fyrsta frétt Bylgjunnar um eld í skúri útigangsmanns. Ekki var grunur um að kviknað hafi út frá rafmagni.
Nú kemur að því sem er merkilegast: Útvarp Saga var með ágætis viðtal við Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga par exelance. Hann ræddi mikið um verðhækkanir og græðgi í álagningu. Í raun væri verið að stela styrkingu krónunnar. Útvarp Saga fær prik í dag.
Með þessum pistli eru ágætis dæmi um málefni sem gjarnan mætti taka með allri virðingu fyrir morðtilraunum á köttum.
Athugasemdir