„Ég hef að góðu að hverfa aftur“
Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju, laut í lægra haldi í biskupskjöri sem fram fór síðasliðinn þriðjudag. Í samtali við Heimildina segist Guðmundur ganga sáttur frá borði. Biskupskjörið hafi verið ánægjuleg og lærdómsrík reynsla sem hann sé þakklátur fyrir. Hann segist nú snúa sér aftur að sóknarstarfinu í Lindakirkju. Þar bíði hans mörg verkefni.